Gefið okkur

Gefið okkur

Gull og græna skóga,

kóbalt, kaffi, zink

og olíu á jeppann.

Gefið okkur

Smjörið sem drýpur

af hverju strái

í ykkar snauðu paradís.

Gefið okkur

vinnandi hendur

sem af íslenskum dug

smíða, skeina og skúra.

Fyrir ykkar góðu gjafir,

af auðmýkt við biðjum

aðeins um eitt.

Fyllið ekki fangelsin okkar

— við þurfum þau

fyrir litlu strákana okkar

sem kerfið brást.

Febrúar 2026

Next
Next

Fíllinn í fæðingarstofunni